Rafvespur
Umhverfisvænnn ferðamáti
Ný og skemmtileg leið til að skoða borgina. Það þarf ekkert próf á rafvespurnar okkar enda flokkaðar með reiðhjólum.
Rafmagnsreiðhjól
Hjól með hjálp!
Að hjóla á rafmagnsreiðhjóli er jafnvel auðveldara en að hjóla á venjulegu reiðhjóli. Njóttu hreina loftsins og skoðaðu borgina á umhverfisvænan hátt án þess að þurfa að púla upp brekkurnar.
Línuskautar
Rúllaðu um Reykjavík!
Skemmtileg leið til að rækta sál og líkama í fallegu umhverfi miðborgarinnar.
Við bjóðum upp á línuskauta í stærðum fyrir alla fjölskylduna.
Veiðistangir
Ertu með veiðidellu?
Að dorga í Reykjavíkur höfn er góð skemmtun fyrir unga sem aldna. Veiðin er oftast góð og umhverfið einstakt.
Alvöru hlaupahjól!
Ef þú ert á aldrinum 12 til 98 ára þá er Xootr hlaupahjól upplagt til að koma þér á milli staða í miðbænum. Þú varðveitir ekki bara skóna þína, heldur líka aurana í buddunni og umhverfið! Á þessu ameríska ofur-hlaupahjóli er lítið annað hægt en að brosa.



