Rómantík í Reykjavík
Skelltu þér í rómantíska ferð um Reykjavík með þinni heitt elskuðu, við getum stungið upp á skemmtilegum leiðum sem gera daginn eftirminnilegan.
Prófaðu áður en þú kaupir
Ef þú ert að spá í að leggja bílnum og skipta yfir í vespu, þá er tilvalið að prófa og sjá hvort þessi lífstíll henti þér.
Bíllinn á verkstæði?
Sparaðu þér kostnaðinn við bílaleigubíl og leigðu frekar vespu á meðan bensínhákurinn er á verkstæði.
Gæsun eða steggjun
Farið með gæsina eða stegginn í skemmtilegan rúnt um Reykjavík á Lundavespum. Hafðu samband við getum aðstoðað við að skipuleggja daginn.
Vantar þig sniðuga afmælis- eða tækifærisgjöf?
Gefðu skemmtilega upplifun, þú getur ekki gefið dýrmætari gjöf en góðar minningar.
Viðraðu mömmu þína
Hún hefur gott af því að fá smá frískt loft og líða um götur borgarinnar með þér. Eitthvað sem talað verður um í fjölskylduboðunum í mörg ár ;)
Þarftu að snattast í miðbænum?
Taktu vespu á leigu.... það sparar þér sporin, tímann og klinkið í stöðumælana. Fólk og fyrirtæki sem eru t.d. í bæklingadreifingu geta fengið góðan díl...special offer for you my friend!
Brjóttu upp hversdagsleikann
Þú upplifir borgina á nýjan og skemmtilegan hátt á Lundavespu. Taktu tvo eða fleiri vini þína með og fáðu afslátt! "Poppaðu upp móralinn á vinnustaðnum". Tilboð fyrir fyrirtækjahópa sem vilja gera eitthvað eftirminnilegt saman.



