Skemtileigan Lundavespur eða Puffin Scooters var stofnuð sumarið 2008 með litlum fyrirvara.
Hugmyndin að leigunni spratt frá vangaveltum yfir því hvers vegna fólk ferðaðist í svo miklum mæli frá einum stað til annars innan Reykjavíkur á jeppum yfir sumartímann! Fyrirmyndin var sótt erlendis frá þar sem allar helstu borgir hafa upp á slíka þjónustu að bjóða, því ekki líka höfuðborg Íslands?
Með vespuleigunni er ætlunin að bjóða upp á nýja tegund afþreyingar fyrir landsmenn sem erlenda ferðamenn og í leiðinni kynna íslendingum kosti þess að keyra um á slíkum ökutækjum í stað eyðslufrekra bíla.
Vegna þeirra jákvæðu viðbragða sem fengust við þjónustunni fyrsta sumarið sem leigan var opin, var ákveðið að stökkva út í djúpu laugina og halda ævintýrinu áfram.
Sumarið 2010 bættust línuskautar, rafmagnsreiðhjól og dorgveiðistangir við leiguna. Sama sumar hófst gott samstarf við leiðsögumennina hjá Season Tours, en þeir sjá um leiðsagðar ferðir á vespunum og rafmagnsreiðhjólunum um áhugaverða staði í Reykjavík.
Nýjasta nýtt á leigunni eru svo litlu rafvespurnar okkar, en á þær þarf ekkert bílpróf enda komast þær ekki hraðar en 25 km/klst. Þessar vespur færa okkur enn nær því markmiði að passa betur upp á umhverfið okkar enda er draumurinn að vera eingöngu með umhverfisvænustu tækin á leigunni sem völ er á!
Ást og Friður.



